Umsagnir og Árangur

Stefán Guðmundsson

„Slánalegur að vexti kom ég til Danna í von um að hann gæti komið mér í betra form. Hann byrjaði á því að fara í gegnum líkamsstöðu mína, tók mælingar og fór með mér í gegn um markmið þjálfunarinnar. Síðan þá hef ég bætt á mig yfir 15kg af pure meat og lækkað töluvert í fituprósentu. Styrkur og vellíðan bættist einnig til muna og fljótlega náði ég öllum mínum markmiðum og gott betur en það.

Danni er hress, skemmtilegur og metnaðarfullur einka- og styrktarþjálfari sem er stútfullur af fjölbreyttum hugmyndum þegar kemur að æfingum. Hann er traustur vinur sem kennir þér að standa á eigin fótum í ræktinni. Ef þú ert að pæla í að fjárfesta í heilsunni þá mæli ég með að þú skellir þér í þjálfun til Danna, þú munt ekki sjá eftir því.“

Sjá – Fjarþjálfun, Einkaþjálfun eða Hybrid Þjálfun.

DF Þjálfun - Fjarþjálfun, Einkaþjálfun, Hybrid Þjálfun

Umsagnir um mína hópþjálfun í YAMA Heilsurækt

DF Þjálfun - Fjarþjálfun, Einkaþjálfun, Hybrid Þjálfun

Viktor Sigurjónsson

„Ég byrjaði hjá Daníel í September 2016. Við settumst niður og settum okkur markmið um að missa 15 kg. Við gerðum sérhæft plan og gerðum markvissar æfingar sem hentuðu mér. Síðan náðum við markmiðinu þann 22 des 2016. Það er klárt mál að Daníel kann vel til verka og lagði grunninn að heilbrigðum lífstíl hjá mér til langs tíma sem ég er ofboðslega þakklátur fyrir.

Í dag æfi ég 4-5x í viku og hef aldrei verið í betra formi og sjaldan liðið betur. Mæli eindregið með Daníel sem einkaþjálfara því hann fylgir hlutunum vel á eftir.“

Sjá – Fjarþjálfun, Einkaþjálfun eða Hybrid Þjálfun.

Heiðdís Helgadóttir

„Danni er einfaldlega besti einkaþjálfarinn í bransanum! Ég fór skeptísk af stað í þjálfun í byrjun árs, einfaldlega vegna þess að ég var í hræðilegu formi og hélt að ég væri að fara út í eitthvað sem ég hefði einfaldlega enga burði í. Danni teiknar æfingarnar upp fyrir hvern og einn og fór algjörlega eftir mínum óskum sem gerir það að verkum að ég er að gera æfingar sem henta mínu líkamlegu ástandi.

Ég hef átt við mikla verki í baki að stríða síðastliðin ár sem hafa varla gert vart við sig síðan þjálfun hófst hjá Danna. Ég hef náð miklum árángri og er að lyfta þyngdum sem ég hélt að ég gæti aldrei gert. Þessi þjálfun skilar sér svo inn í daglegt líf mitt að því leyti að ég sef betur, vinn betur, er hressari, glaðari og bara almennt jákvæðari. Danni hefur einstakt lag á því að láta manni líða vel á æfingum og ég hlakka til að mæta í hvert skipti.“

Sjá – Fjarþjálfun, Einkaþjálfun eða Hybrid Þjálfun.

DF Þjálfun
DF Þjálfun

Gunnar Þór Þórsson

„Ég hef æft eftir prógrömmum frá Daníel í meira en ár núna og hef verið mjög sáttur. Daníel er að mínu mati mjög fær styrktar- og einkaþjálfari með brennandi áhuga á því sem að hann er að gera, sem að kemur augljóslega fram í þeirri vinnu sem að hann skilar frá sér. Í mínu tilviki vantaði mér lyftingarprógramm meðfram öðrum æfingum (bardagaíþróttum og hlaupi) til þess að fyrirbyggja meiðsl og styrkja mig, æfingarnar þurftu því að vera gáfulega upp settar með tilliti til álags og tilgang hverrar æfingar. Eins og fram hefur komið hef ég verið mjög ánægður með þá þjálfun sem að ég hef fengið frá Daníel og mæli því hiklaust með honum sem þjálfara.“

32312908_10156325438604231_8617400134763806720_n 1

Heiðdís Helgadóttir

„Danni er einfaldlega besti einkaþjálfarinn í bransanum! Ég fór skeptísk af stað í þjálfun í byrjun árs, einfaldlega vegna þess að ég var í hræðilegu formi og hélt að ég væri að fara út í eitthvað sem ég hefði einfaldlega enga burði í. Danni teiknar æfingarnar upp fyrir hvern og einn og fór algjörlega eftir mínum óskum sem gerir það að verkum að ég er að gera æfingar sem henta mínu líkamlegu ástandi.

Ég hef átt við mikla verki í baki að stríða síðastliðin ár sem hafa varla gert vart við sig síðan þjálfun hófst hjá Danna. Ég hef náð miklum árángri og er að lyfta þyngdum sem ég hélt að ég gæti aldrei gert. Þessi þjálfun skilar sér svo inn í daglegt líf mitt að því leyti að ég sef betur, vinn betur, er hressari, glaðari og bara almennt jákvæðari. Danni hefur einstakt lag á því að láta manni líða vel á æfingum og ég hlakka til að mæta í hvert skipti.“

Sjá – Fjarþjálfun, Einkaþjálfun eða Hybrid Þjálfun.

DF Þjálfun
  • "Daníel er algjörlega frábær þjálfari. Hann hefur áhuga, er vandvirkur og útskýrir vel þegar maður leitar til hans"
    - Ljósbrá
  • “Við félagarnir höfum verið hjá Daníel í um tvö ár, árangurinn hefur verið virkilega góður. Daníel er frábær þjálfari með fjölbreyttar æfingar og nær að halda prógraminu síbreytilegu, þannig að við fáum aldrei nóg eða verðum leiðir á æfingunum. Daníel sjálfur er yfirvegaður fagmaður sem nær sínu fram á rólegu nótunum. Andrúmsloftið á æfingunum er rólegt og afslappað. Fagmennska + metnaður = Daníel.”
    .

    - Kristinn
  • "Daníel er afskaplega hæfur þjálfari fylgist vel með að allt sé rétt framkvæmt og hvetur mann áfram. Daníel er með einstaklega góða nærveru og kann vel að lesa stóran hóp af mismunandi einstaklingum sem ég tel vera afskaplega góðan kost á þessu sviði. Alltaf mættur"

    - Þórunn
  • "Frábær þjálfari. Yfirvegaður, faglegur, skemmtilegur. Hann er þjálfarinn sem þú treystir"

    - Ásta
  • "Danni er frábær þjálfari. Faglegur og veit 100% hvað hann er að gera"

    - Sigrún
  • "Daníel mætir öllum af virðingu og án allra öfga. Það eru engin læti en samt er hann svo hvetjandi að mann langar að gera betur í dag en í gær. Daníel leggur sig fram við að mæta sínu fólki þar sem það er statt og vinna þaðan"

    - Helga
  • "Daníel er frábær þjálfari og eftir sjö mánuði á æfingum hjá honum hef ég náð miklum árangri, ég hef prófað mjög margt í líkamsrækt en aldrei enst neins staðar fyrr en ég byrjaði hjá honum. Hann er stundvís og pottþéttur og á æfingunum er mikið utanumhald og það er öryggi að vita af því að hann fylgist með manni og lætur vita af því ef leiðrétta þarf æfinguna eða formið og hann er mjög góður í að finna einstaklingsbundnar lausnir ef um er að ræða t.d. meiðsli. Daníel er mjög þægilegur í samskiptum og elskulegur og það er alltaf gott að mæta á æfingar hjá honum og ég mæli heilshugar með honum sem þjálfara!"

    - Gurrý
  • "Góður fagmaður - hefur góða þekkingu, stundvís, alltaf tilbúinn með dagsplanið, tekur tillit til hvers og eins, hvetjandi, jákvæður og þægilegur"

    - Milla
  • "Daníel er dásamlegur þjálfari - traustur, sanngjarn og mjög hvetjandi. Daníel er mjög glöggur að lesa skjólstæðinginn sinn og finna út hvað hentar best. Hann er með mikla þekkingu og reynslu sem þjálfari. Hann er einn allra besti þjálfari sem ég hef nokkurn tíma haft"

    - Auður
  • "Frábær þjálfari með einstaklega góða og yfirvegaða nærveru. Setur saman vel útpældar æfingar sem svínvirka en eru öruggar fyrir alla"

    - Inga
  • "Daníel er mjög góður þjálfari. Hann hefur þægilega og yfirvegaða nærveru. Hann útskýrir æfingar á skýran og einfaldan hátt og fylgist vel með að skjólstæðingar hans vinni þær rétt. Hann gefur sig að hverjum og einum og spyr reglulega hvernig líðan skjólstæðinga hans er varðandi meiðsli (ef slík eru til staðar) og stöðu þeim tengdum og leggur til aðrar æfingar ef þarf, til að koma í veg fyrir möguleg neikvæð áhrif vegna þeirra. Hann er stundvís og áreiðanlegur. Ég mæli fyllilega með Daníel sem þjálfara"

    - Elsa
  • "Algjörlega framúrskarandi þjálfari"

    - Ragnhildur
  • "Frábær þjálfari með þægilega nærveru. Mjög næs að mæta og vera í tíma hjá honum"

    - Sverrir
  • "Danni er einstakur, samviskusamur, faglegur, fróður, vandaður og umfram allt góð manneskja. Danni er fasti punkturinn í tilverunni, hópurinn okkar hefur mætt klukkan 6:00 á morgnana þrisvar í viku og undantekningalaust er Danni mættur stundvíslega og tekur á móti okkur tilbúinn með æfinguna. Ég hef stundað þjálfun hjá ólíkum þjálfurum síðustu 25 ár og Danni skarar þar fram úr. Ég mæli eindregið með Danna sem þjálfara, þeir eru heppnir sem taka ákvörðun um að æfa hjá honum"

    - Júlía
  • "Góður þjálfari með þægilega nærveru, heldur þér við efnið og gerir æfingarnar skemmtilegar"

    - Vala
  • "Daníel er einstaklega flinkur þjálfari. Hugmyndaríkur, hvetjandi, jákvæður, þægilegur, og umfram allt mikill fagmaður. Maður kemur aldrei að tómum kofanum þar sem Daníel er annars vegar"

    - Regína
  • "Að vera í hóptíma hjá Daníel er eins og að vera hjá einkaþjálfara. Glöggur að sjá hvað hentar hverjum og einum"

    - Aðalheiður
  • "Ég er nokkuð viss um að Daníel er í starfi þjálfara af sannri ástríðu fyrir því að bæta líf og heilsu fólks og það gerir hann einfaldlega að yfirburðaþjálfara. Þjálfun hjá Daníel er án allra öfga. Hann hefur mjög einbeitta og skýra sýn á að þjálfunin eigi að snúast um að ná hægfara og bítandi framförum með langtíma heilsumarkmið í huga. Mér hefur sem dæmi aldrei liðið illa á æfingu hjá Daníel eða verið þjökuð af verkjum eftir æfingu hjá honum. Meðal þess sem einkennir Daníel sem þjálfara er að hann mætir fólki á þeim stað sem það er hverju sinni. Þetta sést bæði á því að hann aðlagar allar æfingar að hentugleika hvers og eins, og því að hann er mjög góður í að greina á milli þess hvenær fólk er í stakk búið að leggja sig meira fram á æfingunni og hvenær það er einfaldlega nægilega stór biti fyrir viðkomandi að mæta yfirhöfuð á æfingu. Að hafa þjálfara með slíka næmni er frábært og ekki öllum gefið. Ef þú ert að leita að skyndilausnum og kjaftæði þá skaltu ekki leita til Daníels. Ef þú ert hins vegar að leita að þjálfara sem hefur þína hagsmuni í fyrirrúmi, er einbeittur og veit hvað hann er að gera skaltu leita til hans. Og það sem mestu skiptir: hlustaðu og farðu eftir því sem hann er að segja þér"

    - Jóhanna